Birkir Örn
23.11.2006 20:39:24 / birkir

Birkir


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 08:27:37 / birkir

Minningarsíða

Vill benda á þessa síðu fyrir þá sem vilja minnast Sesars

http://www.blog.central.is/sesar_thor


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 16:45:20 / birkir

Í minningu um góðann dreng

Í dag fór ég í krossapróf til að geta gengist undir meiraprófið. Ég hafði verið í verkefnavinnu í háskólanum og hafði um það bil 45 mín til að undirbúa mig undir prófið sem hófst kl 14:00. Ég gat samt ekki einbeitt mér að því efni og fór því niður að Vífilfell til að minnast góðs drengs og skrifaði þar nokkur orð um hann.

 

 



Ég sit hér útí bíl á Hagkupsplaninu og horfi á þann stað sem hann Sesar Þór Viðarsson kvaddi þennan heim. Hann var greinilega og skiljanlega vinamargur og hafa margir lagt leið sína að þessum stað til að minnast hans og syrgja. Blóm liggja þar hans til minningar og friðarkertin lýsa yfir þeim. Nú rétt í þessu var par að leggja blómvönd niður eftir að hafa farið með stutta bæn og krossað yfir. Þessi sorg sem tekist er á við svona aðstæður er mikil og það að geta hvatt hann með einhverjum hætti svo sem þessum er mikilvægur.

 ...Sesar þín er saknað..

Það var alltaf hressandi að hitta Sesar frænda. Hann hafði alltaf frá einhverju að segja og lognmollan í kringum hann var ekki mikil. Reyndar voru samskipti okkar undir það síðasta ekki mér mikil til geðs... þau fjölluðu aðallega um hversu Liverpool væru miklu betri en þetta Man. Utd. og hvað Þórsarar væru betri en K.A.

...Sesar við munum minnast þeirra stunda sem þú gafst okkur...

Ég vil líka undirstrika samúð mína með fjölskyldu hans. Ég fór ásamt foreldrum mínum að hitta þau eftir slysið og ég kom ekki upp orði til að segja þeim, sorgin er svo mikil. Manni finnst sorgin sem maður ber vera lítilsmegnug þegar maður faðmar foreldra hans og systkyni. Ég vil þakka þeim fyrir að taka á móti okkur því þetta er ekki auðvelt fyrir fjölskyldu að takast á við svona. Þetta auðveldaði mér að takst á við sorgina eftir að vera búinn að votta þeim alla þá samúð sem ég átti.

...Sesar, minning þín mun lifa...

Ég vil einnig votta öllum vinum hans og öðrum ættingjum samúð mína. Ég veit að Sesar var vinamargur enda auðvelt að kynnast þessum opna og félagslynda dreng. Ljóst er að ættarmót og vinasamkomur eiga eftir að sakna nærveru Sesars og hvet ég alla til að halda minningu hans á lofti.

...Sesar þér verðu ekki gleymt...


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 22:37:18 / birkir

PubQuiz

Jæja, ég og Balli erum búnir að taka þetta tvisvar... hvað segiði? er enginn sem ætlar að  velgja okkur undir uggum?

Annars var ég semsegat á pubquiz, mjög gaman. Sumir skrópuðu en aðrir þorðu bara ekki að mæta... oki ég er kanski of góður með mig... En bið bara að heilsa og lofa einhverju meira jusy næst :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 08:41:02 / birkir

Smá færsla..

Múslimar => Mú-slími, þessi mennigarhópur. Var sko ekki maðurinn sem hugsaði illa til nokkurar þjóðarbrota fyrr en fyrir 2 árum. Þá kynntist ég þessum líka fínustu Tyrkjum í USA. Fínir gaurar sem voru vinir allra... ddarararamm mánuði seinna voru þeir búnir að einangra sig frá hópnum sökum kynþáttafordóma og trúarvillu okkar hinna. Þvílík vitleysa, það var ekkert þannig í gangi heldur vantaði bara smá skrúfu í þá. Þeir komust að því að það voru allir á móti þeim og við værum öll best geymd neðanjarðar. Náttla ekki í lagi!!! Svo núna eru þeir gersemlega að fá mega-tremmu útaf þessum myndbirtingum, jemen eini! Hvernig væri nú að láta þessa menn fá vinnu! Það eina sem þeir virðast gera allann daginn er að brjóta og bramla hluti sem þeir geta ekki kveikt í. Legg það til að Alcoa fari með eitt álver þangað og hafi smá ofan að fyrir þeim, þeir hafa greinilega ekkert að gera! En friðir ríkir með þeim einföldu.

Evrovision => Abbóvision, eins og áður hefur komið fram er þetta ekki tilvitnun í fyrrum vinningshafa. Þetta er tilvitnun í þá sem sjá sitt eina tækifæri á að koma sér á framfæri þarna í forkeppninni er að fara í mál við einhverja stúlku sem rústaði þeim. Góðann daginn get a grip!! Hún sagði þetta best ...evrovisoin nation fær sko flog er ég kem... og það er sko búið að ske strax hérna á Ísl! Hvað á þá eftir að gerast þegar hún fer þarna út, hlakka til!

Vísindaferð => Vínandaferð.... had to be there!!!

Hotel Cabin => Party Hotel!

Frh seinna, rekstrarfræðikallinn er að fá kast á töflunni, greinilega mikill jaðarábati að fara 3 sinnum í bíó!


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 10:48:29 / birkir

smá blogg...

Athugið að ég hef skellt inn nýrri skoðannakönnun sem mig langar að allir svari. Þeir sem tekið hafa eftir topic-inu á síðunni er þetta í ganni gert til að ég fái nú nokkrar heimsóknir frá félögum mínum hjá Google. Því ef þið takið eftir því þá voru komin nokkur comment á eitt blogg hjá mér sem eru örugglega eitthvað tengd því!! úfff! Langar bara að sjá hvaðan fólkið kemur ;)

Ath á síðan eftir að blogga meira um helgina... bara svo mikið að segja eins og frá partyum á föst. kvöldið!


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 10:37:32 / birkir

Rvk um helgina...

Jæja, góðann daginn.

 

Hef nú ákveðið að taka fram blogg-hanskana á ný og skrifa nokkrar línur.

Er nú í feykiskemmtilegum tíma í Rekstrarstjórnun... já eða kanski ekkert rosalega skemmtilegt.. En helgin sem því miður er á enda var bara alger snilld! Þeir Rekabúar sem fóru ekki í þessa ferð misstu af mikklu og þeir Rekabúar sem voru fyrir sunnan en létu ekki sjá sig og skemmtu sér ekki með bekkjarfélögum... bara á ekki orð!

Maður kynntist fullt af nýju fólki sem kunni svo sannarlega að skemmtasér og var sko Hressó hertekinn af háskóladjömmörum um helgina og engu líkara en um að útibú cafe-amour væri að ræða. En verð nú að segja frá því að sjálfsögðu lenti ég í slagsmálum, einhvet stelpa lenti utan í mér, mar er nú svo breiður..., og þegar ég ætlaði að byðjast afsökunar byrjaði hún bara að láta kattaklórin flæða og þegar ég hörfaði elti hún mig í svona 30 sek. alveg magnað helv. haha. En það var alveg ljóst hver var stjarna laugardagskvöldsins, því að í hvert skipti sem að lagið með henni Silvíu Nótt ómaði ætlaði lýðurinn að tryllast. Og er ég þá sennilega ekkert undanskilinn því :/ Enda stóð hún sig með endæmum vel. Ég mæli með því að við sendum hana því að við eigum hvurt eð er aldrei eftir að vinna þessa keppni og af hverju ekki að senda einhvern sem maður á eftir að muna eftir. “... eurovisoin nation fær flog er ég kem...” langar bara að sjá það. J 

En svo að ég segi yjjur nú smá frá vísindaferðinni sem var nú ekki ýkja löng eins og vísindaferðum sæmir. Fórum á fimmtudegi og komum á sunnudegi... bíddu það er nú ekkert stutt gæti einhver sagt, en jbíddu fórum í þrjár heimsóknir sem hvor um sig var svona 1 og ½ tími þar sem bjórdrykkja átti sér stað í meirihluta tímans. Fyrst voru það tremmadagar (framadagar) á föstudag, síðan var Avion Group á föstudag og þeir vöru sko ekki að klikka á neinu!! Öss þvílíkur eðall! Þaðan var síðan brunað niður í Mastercard þar sem ég var næstum búinn að missa þvág í bílnum hjá Árna og þegar þar var komið var sko látið gossa og ég er að segja ykkur það að það hefði sko verið hægt að virkja þessa bunu! Kárahnjúkar hvað? Úff léleg saga... En það var allavega tekinn 20 mín fyrirlestur og síðann var það bara bjór og snittur. Mjög fínt!

En heyriði nú sýnist mér Bjarni Hjarðar (kennarinn) vera að fara á kostum á töflunni þannig ég ætla nú að fylgjast með kallinum!

Sææææææælllarrr!!!  



 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.11.2005 08:58:51 / birkir

neinni ekki aðblogga í augnablikinu

var búinn að blogga í 40 mín, en síðan hvarf allur textinn!!!!

» 122 hafa sagt sína skoðun

05.11.2005 13:50:54 / birkir

Bloggarinn Birkir Mættur

Jæja gaman að sjá ykkur aftur. Er í augnablikinu að semja fyrirlestur fyrir ensku á mánudaginn, hann verður um 66°norður og verður alveg brilliant (eða ekki). Ætla að mæta með fullt af fötum sem ég á eftir að hafa unnið þar í heilt ár... úff ef ég hefði unnið þar lengur.... ég á of mikið af fötum þaðan. En mæli með þessum vörum, það geta allir farið inn í verslun frá þeim og fundið eitthvað sem þeim vantar, sérstaklega í þessum kulda núna.
    Í gær eftir skóla ætluðum við skötuhjúin að fara og ganga á Súlur en það vildi bara ekki betur til en svo að enginn var búinn að segja mér að það væri betra að vera á jeppa heldur en Polo til að komast eitthvað áleiðis. (Kristján frændi er vinsamlegast beðinn um að hafa samband næst þegar hann fer!) Þannig við fórum bara í kjarna í alveg magnaða göngiferð. Sáum reyndar að við urðum að eignast gönguskíði til að tramma almennilega um allann skóginn. Síðar um kveldið var síðan farinn í kjúlla hjá mömmu og pappa, kikkar ekki!!! úff... En hvað haldiði að hafi gerst á meðan við vorum þarna, júbb gamall karl þarna á eyrinni þurfti að losa sig við gönguskíði í stærð 44 og 37! akkurat í stærðunum okkar Maju. Þannig nú eigum við EINS gönguskíði. Úff, eins og einhver sagði þá verðum við næst að eignast eins krumpugalla...
    En best að fara að hella sér í enskuna, er að spá í því að horfa á svona 5 þætti af "Little Britain" áður en ég held fyrirlesturinn til að fá enska hreiminn á hreint.... Bið að heilsa...

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 10:03:38 / birkir

Okidoki

Jamm ég er mjög lélegur í þessu bloggi en hvað sem frá því líður...

1. Ég borða allann mat!
2. Ég fékk 8.8 fyrir aða verkefni 1 og það er nú hægt að finna á netinu sem fyrirmyndar efnisgrein fyrir háskólanemendur.
3..... hvað er egnilega málið með þetta klukk, ég hér með slít þessari klukk keðju og bíð eftir einhverri nýung sem er eitthvað sniðugari...... kanski ég reyni bara að finna uppá einhverju nýju......

          Ef þú ert að lesa þessi skilaboð þá ert þú ekki í góðum málum. Sendu linkinn að þessari síðu á fimm manns á msn-inu þínu annars kemur eitthvað slæmt fyrir þig á næstu 5 mín. Þegar það er búið skalt þú skrifa comment sem lýsir aðdáun þinni á eiganda síðunnar. Ef þessu ferli hefur ekki verið lokið innan 10 mín frá lestri..... úff get ekki sagt það ég fæ bara gæsahúð....

En til að reyna að segja eitthvað þá elduðum við hjúin bjúgu í gær með kartöflustöppu. Um helgin var svaðarlegt jamm, byrjað heima hjá Árna bekkjarfélaga og síðan haldið á Amour. Þar voru tekin nokkur Opal skot og dansgólfið fékk að finna fyrir fimi karlsins. En talandi um Amour, fyrir þá sem hafa farið á jammið hérna á Akureyrinni þá eru valkostir um skemtistaði að fækka. Allt frá því að setrið lokaði fyrir hlerann er lítið að gera.... eða þannig, nei ég meina það fara all flestir á Amour því Kaffi Ak og Sjallin eru eitthva að lýast, hef nú samt alltaf trú á Sjallanum........ oki þetta er leiðinleg umræða djammdjammdjamm.
Lanagar að benda fólki á að sería 3 af nip tuck er rosaleg! Milan tapaði 1-0 fyrir PSV!!! en chelsea tapaði líka ;) !! Ég er staddur í fjárhagsbókaldstíma. Ég er með vinnuvélaréttindi. Ég fæ fjöldann allan af heimsóknunum á síðuna mína á hverjum degi sökum þess að ég er með "free porn" sem topic.. mjög töff...Ég nenni þessi ekki lengur í bili.
Reyni að standa mig betur næst.



» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2005 17:37:14 / birkir

Jæja

Nú er maður ekki búinn að skrifa í nokkurn tíma en alltaf eru einhverjir að kíkka á síðuna, svo mér finnst ég knúinn að leyfa aðdáendum mínum að fylgjast með því sem er að ske.
Fyrir þá sem ekki vita er ég að vinna hjá 66  norður á lagernum. það er  ágætis dægrarstytting þar til maðyr flytur norður í blíðuna og byrjar í háskólanum. Jebb maður er á leið í HA og er meira að segja búinn að taka þátt í brjálæðinu og keypt mér íbúið með Maju í Tjarnarlundinum :) Svo allir eru velkomnir í heimsókn í kringum 1 sept og eins lengi við eigum eftir að búa þarna.

En svona úr daglega lífinu þá er maður að vinna frá 6 á morgnanna til 3 á daginn. Það er alveg helv. fínt og maður byrjar á því á morgnanna að henda Maju í ræktina og fer síðan í vinnu og áður en maður nær í Maju aftur skellir maður sér í ræktina og tekur vel á því. Og ég var svo sniðugur að ég nýtti mér það að fá einn tíma með einkaþjálfara og hvrjum mætti ég öðrum í dag en Gilzinegger eða Egil. Veit ekki alveg hvort þið þekkjið kauða þá er hann allavega chokkó Íslands og er aðal gaurinn. Svo maður verður að pumpa á fullu svo passið ykkur á kallinum!

En jæja er að fara að grilla hjá Bjarna svo ég bið að heilsa og góðar stundir!:::

» 7 hafa sagt sína skoðun

14.09.2004 14:38:43 / birkir

Kominn heim!!!!!!

Bara láta ykkur vita ad ég er kominn heim, allavega til Reykjavíkur sem verður víst heimili mitt í vetur eda nánar tiltekid Garðabær, og eg enn ad leita mér ad vinnu tannig öll tilboð eru tekinn ef þið vitid um einhvern sem er ad leita af manni í vinnu. En ég hef í hyggju ad skrifa eitthvad meira um heimferðina sem spannar Dubli-New York-London-Reykjavík, ekki slæmt. En bid ad heilsa og látid heyra í ykkur :)

» 4 hafa sagt sína skoðun

31.08.2004 23:50:22 / birkir

Tad styttist!

Jaja, sael og blassud. Tad er nu ekki langt i mig, fjorir dagar i vidbort i budunum og sidan kem eg til landsins um midjan sept eftir stutt stopp i London hja storu systur! En um sidustu helgi attum vid Maja godan tima i New York, eftir miklar ahyggjur tokst Maju ad redda okkur til New York a Fostudeginum tvi vid heldum ad tar vaeri ut ur myndinni. En eftir nokkrar lestarferdir komum vid til NY og stoppudum i Madison S. Garden og tar var sko fjor tvi tar var sko oryggisgaesla i gangi fyrir komandi ting republikanna! Og um helgina ta voru logreglumenn a hverju horni!!! En vid Maja asamt Juan sem joinadi okkur a laugardeginum skodudum New York og skemmtum okkur bara nokkud vel, ta ma segja ad madur rati nokkud vel i New York nuna :) En eg bid ad heilsa heim og bara,,,,bara jjjaa ege er alveg ad koma!!

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.08.2004 23:57:26 / birkir

Sael og blessud

Jaja timinn fygur sko tessa dagana, Maja kom a laugardaginn og tad var sko sannarlega god tilfining ad fa hana hingad. Nu tessa stundina er hun hja Kristine, foreldrar hennar voru nogu god i ser ad taka hana ad ser i nokkra daga. En vid vorum fyrstu nottina a hoteli i Doylestownm, baerinn tar sem budirnar eru. Eftir goda dvol tar forum vid i sund-teiti hja Kristine og tar er hun enn. Vid reynum sidan ad hittast a hverju kvoldi. En naestu helgi er stefnan tekin a New York tvi Maja fer sidan heim manudaginn eftir. Eg er buinn ad boka hotel tannig vid bidum bara spennt nuna. En nu ad odru, kvnar kem eg heim, tad verdur um midjan sept. Eftir budirnar sem enda 4 sept er stefnan enn og aftur tekin a Stora eplid og sidan til London tar sem eg verd nokkra daga med henni Horpu systur. Ju og i vetur verdum vid Maja fyrir sunnan, vid munum vera hja mommu hennar og Maja verdur ad vinna a leikskola en eg er enn spurningarmerki. Ef einhver veit um vinnu fyrir sunnan ta ma hann endilega senda mer linu, en eg er nu ekkert rosarlega stressadur tetta reddast. Tannnig studid verdur fyrir sunnan i vetur!! Allir til RVK ;) En enn og aftur bid eg ad heilsa heim..... biddu eitt fyrst.... eg var ad skoda myndirnar fra Rumfo party og madur tekkti varla folkid a myndunum tad er heldur betur margt sem madur tarf ad fa svor vid! .... oki baebb!

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2004 09:44:24 / birkir

Gaerir dagar framundan!!

Jaja ta er mar loksins sestur fyrir framan tolvuna of byrjadur ad skrifa eitthvad. Mar er bara alltaf svo bissy. En eins og vid felagarnir i rumfo myndum segja ta eru glaerir dagar framundan (til ad fa nanari skiringu a tesso ordi hafidi sambamd vid Hilmar i Rumfo) Maja kemur a morgun og ta verdur sko fjor! Madur er buin ad stroglast i gegnum vikuna hugsandi bara nokkrir dagar i vidbot.. en tetta styttist odum og adur en madur veit verdur madur kominn heim! En eg vil bara segja ad tad er alllt gott ad fretta hedan og verdur ennta betra um helgin! bid ad heilsa heim og serstaklega i rumfo!! en annars goda helgi!!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4